Stafrænt ökuskírteini er fyrir alla sem hafa ökuréttindi og eru með snjallsíma. Skírteinið sannar að viðkomandi er með gilt ökuskírteini og á því koma fram sömu upplýsingar og á hefðbundnum ökuskírteinum.
Stafræn ökuskírteini gilda bara á Íslandi.
Stafrænt ökuskírteini gildir til að sanna ökuréttindi fyrir lögreglu.
Stafrænt ökuskírteini gildir ekki við endurnýjun á rafrænum skilríkjum (slíkt krefst framvísunar vegabréfs eða hefðbundins ökuskírteinis).
Skírteinið er fyrir notendur með Android-síma og iOS-síma en eingöngu er hægt að setja ökuskírteinið upp á einu símtæki í einu. Ef það er sett upp á öðrum síma afvirkjast það í tækinu sem það var í áður. Notendum með Android-síma er bent á að sækja íslenska veskisappið Smartwallet fyrir bestu virknina.
Tengt efni


Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki sem velja að móttaka stafrænu ökuskírteinin til auðkenningar.
Þjónustuaðili
LögreglanTengd stofnun
SamgöngustofaTengd stofnun
Sýslumenn