Fasteignamat, beiðni um endurmat
Fasteignamat er gangverð, umreiknað til staðgreiðslu, miðað við heimila og mögulega nýtingu á hverjum tíma, sem ætla má að eignin hefði í kaupum og sölum í febrúarmánuði næst á undan matsgerð.
Endurmat á fasteignamati
Sé eldri húsum breytt, t.d. ef byggð hefur verið sólstofa, breytist matið. Einnig ef hlutfallstölur í fjöleignarhúsi breytast t.d. með gerð eignaskiptayfirlýsinga. Beiðni um endurmat tekur bæði til gildandi mats og til fyrirhugaðs mats næsta árs, þegar það liggur fyrir.
Þjóðskrá Íslands
Þjóðskrá Íslands