Almenn gjafsókn
Skilyrði
Til að fá almenna gjafsókn þarf eitt af eftirtöldu að eiga við:
Fjárhagur umsækjanda er þannig að málskostnaður verði honum fyrirsjáanlega ofviða.
Aðstæður eru þannig að niðurstaða málsins gæti skipt verulega miklu máli fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjanda.
Niðurstaða máls hefur verulega þýðingu fyrir almenning, til dæmis með því að skapa dómafordæmi um svipuð mál.
Viðmiðunarmörk tekna
Til að fá gjafsókn á grundvelli bágrar fjárhagsstöðu er miðað við eftirfarandi viðmiðunarmörk tekna árið 2021:
Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars og fjármagnstekjur nemi ekki hærri upphæð en 3.853.962 kr. (reitur 2.7 á skattframtali)
Ef umsækjandi er í hjónabandi eða sambúð mega samanlagðar árstekjur umsækjanda og maka hans ekki nema hærri upphæð en 5.789.222 kr.
Viðmiðunarmörkin hækka um 428.448 kr. fyrir hvert barn undir 18 ára aldri sem býr hjá umsækjanda.
Ef umsækjandi er yngri en 18 ára eru samanlagðar tekjur foreldra hafðar til hliðsjónar og mega þær ekki vera hærri en 5.594.000 kr.
Viðmiðunarmörkin taka breytingum miðað við vísitölu neysluverðs 1.janúar ár hvert.
Umsókn
Skriflega umsókn um gjafsókn þarf að senda til dómsmálaráðuneytisins að minnsta kosti þremur vikum fyrir aðalmeðferð máls.
Afgreiðslutími umsókna er almennt 1 - 2 mánuðir.
Eftirfarandi þarf að koma fram í umsókninni:
Fullt nafn, kennitala, staða og heimilisfang umsækjanda og gagnaðila.
Fyrir hvaða dómi málið er rekið og hvaða lögmaður fer með það fyrir hönd umsækjanda.
Umsóknin þarf að vera ítarlega rökstudd og þarf meðal annars að koma fram:
helstu málsatvik, málsástæður og lagarök
hvort nægilegt tilefni sé til málshöfðunar eða málsvarnar
upplýsingar um fjölskylduhagi umsækjanda og framfærslubyrði
hver sé áætlaður málskostnaður, þar með talinn kostnaður við öflun matsgerða og annarra sönnunargagna
Fylgigögn
Með umsókninni þurfa að fylgja:
helstu málsskjöl
staðfest ljósrit af skattframtölum umsækjanda síðustu tveggja ára og maka hans eða sambúðarmaka.
gögn um tekjur umsækjanda, maka eða sambúðaraðila fyrir þann tíma sem liðinn er frá síðasta skattframtali
önnur gögn sem gætu haft þýðingu við vinnslu umsóknarinnar.
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Vesturlandi